Sport

Vonn meiddist á æfingu

Vonn og kærastinn hennar, Tiger Woods, skelltu sér á NFL-leik í Denver síðasta sunnudag.
Vonn og kærastinn hennar, Tiger Woods, skelltu sér á NFL-leik í Denver síðasta sunnudag.
Ein besta skíðakona heims, Lindsey Vonn, datt illa á æfingu í gær og óttast er að hún hafi meiðst illa á hné.

Slysið átti sér stað í Colorado í gær þar sem Vonn er við æfingar þessa dagana. Hnéð verður rannsakað ítarlega í dag.

Ekki er vitað hvort hún meiddist á sama hné og gaf sig í febrúar á þessu ári. Hún hefur ekkert keppt síðan og var að ná fyrri styrk.

Það væri því mikið áfall fyrir hana ef hún þarf aftur að hvíla í einhverja mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×