Sport

Kristján og Telma Íslandsmeistarar í kumite

Kristján og Telma með bikarana sína í dag.
Kristján og Telma með bikarana sína í dag.
Íslandsmótið í kumite fór fram í Fylkissetrinu í dag. Keppendur komu frá sjö félögum og var þátttaka góð. Maður mótsins var án efa Kristján Helgi Carrasco, úr Víkingi sem varð þrefaldur Íslandsmeistari annað árið í röð.  

Kristján helgi vann -75kg flokkinn, opin flokk karla og var í sveit Víkings sem sigraði sveitakeppni karla.  

Þetta er annað árið í röð sem Kristján verður þrefaldur íslandsmeistari og sannar það stöðu hans meðal íslenskra karatemanna.  

Telma Rut Frímannsdóttir varð svo tvöfaldur íslandsmeistari þegar hún vann bæði opna flokk kvenna fjórða árið í röð og +61kg flokkinn.  

Í kumite kvenna +61kg flokki varð Isabella Montazeri íslandsmeistari en í -67kg flokki karla vann Sindri Pétursson, Víking, Heiðar Benediktsson, Breiðablik, í mjög snarpri og fjörugri viðureign.  

Pétur Rafn Bryde vann +84kg flokkinn þriðja árið í röð þegar hann mætti margföldum íslandsmeistara fyrri ára, Jóni Inga Þorvaldssyni, Þórshamri, sem ákvað að keppa aftur eftir 8 ár, var viðureign þeirra bráðskemmtileg þar sem þeir félagar skiptust á að skora en þegar uppi var staðið sigraði Pétur 5-3.  

Í +84kg flokki sigraði Björn Diego Valencia, þriðja árið í röð en hann ásamt Kristjáni Helga og Pétri Rafn skipuðu vinningssveit Víkings sem vann sveitakeppni karla.   

Þegar stigin voru svo lögð saman eftir daginn þá stóð Víkingur uppi sem Íslandsmeistari félaga í kumite fullorðinna, þriðja árið í röð, með 29 stig.  Yfirdómari mótsins var Helgi Jóhannesson og mótsstjóri Agnar B. Helgason.

Helstu úrslit      

Kumite kvenna, -61 kg.                                

1. Isabella Montazeri, Víkingur

2. Ingibjörg Halldórsdóttir, KFR

3. María Helga Guðmundsdóttir, Þórshamar

Kumite kvenna, +61 kg                                 

1. Telma Rut Frímannsdóttir, Afturelding

2. Aðalheiður Rósa Harðardóttir, Breiðablik

3. Helena Montazeri, Vikingur

Kumite kvenna, opinn flokkur

1. Telma Rut Frímannsdóttir, Afturelding

2. Helena Montazeri, Víkingur

3. Ingibjörg Halldórsdóttir, KFR

Kumite karla, -67 kg                                  

1. Sindri Péturson, Víkingur

2. Heiðar Benediktsson, Breiðablik

3. Elías Guðni  Guðnason, Fylkir

3. Ólafur E Árnason, Fylkir

Kumite karla, -75 kg

1. Kristján H Carrasco, Víkingur

2. Davíð Freyr Guðjónsson, Breiðablik

3. Sverrir Ólafur Torfason, Víkingur

Kumite karla, -84 kg

1. Pétur Rafn Bryde, Víkingur

2., Jón Ingi Þorvaldsson, Þórshamar

3. Jóhannes Gauti 'Ottarsson, Fylkir

3. Kristján Ó Davíðsson, Haukar

Kumite karla, +84 kg

1. Diego Björn Valencia, Víkingur

2. Bergþór Vikar Geirsson, Fylkir

3. Hákon I Haraldsson, Haukar

Kumite karla, opinn flokkur

1. Kristján Helgi Carasco, Víkingur

2. Jóhannes Gauti Óttarsson, Fylkir

3. Kristján Ó Davíðsson, Haukar

3. Diego Björn Valencia, Víkingur

Liðakeppni karla

1. Víkingur - Kristján, Pétur, Diego          

2. Fylkir- Eggert, Jóhannes, Elías, Bergþór           

3. Haukar- Kristján, Hákon, Helgi                      

Heildarstig                                           

Víkingur - 29

Fylkir - 11

Breiðablik - 6   

UMFA - 6   

Haukar - 5   

KFR - 3   

Þórshamar - 3  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×