Sport

Tvö Íslandsmet hjá Eygló í dag

Eygló fagnar í dag.
Eygló fagnar í dag. mynd/valli
Eygló Ósk Gústafsdóttir hélt áfram að stela senunni á Íslandsmótinu í 25 metra laug í dag. Hún setti tvö Íslandsmet þennan daginn.

Hún setti fyrst Íslandsmet í 400 metra fjórsundi þegar hún synti á tímanum 4:46,36 mínútur og bætti þar með ársgamalt met Ingu Elínar Cryer sem var 4:47,21 mínútur.

Eygló Ósk setti svo Íslandsmet í 100 metra baksundi þegar hún synti á 59,42 sekúndum og bætti þar með metið sem hún setti í gær þegar hún fór fyrsta sprett í boðsundi . Var þetta fimmta Íslandsmet Eyglóar um helgina og ljóst að hún er í hörku formi.

Í undanrásunum í morgun bætti Bryndís Bolladóttir úr Óðni 16 ára gamalt telpnamet Kolbrúnu Ýrar Kristjánsdóttur þegar hún synti 50m flugsund á tímanum 29,37 en það gamla var 29,63.

Brynjólfur Óli Karlsson úr Breiðabliki bætti svo sveinametið í 100m baksundi í morgun þegar hann synti á tímanum 1:06,63 en gamla metið átti hann sjálfur frá því í september á þessu ári – 1:06,91. Í úrslitunum var hann þó ekki hættur og stórbætti tímann úr undanúrslitunum og setti glæsilegt met 1:03,92.

Sunneva Dögg Friðriksdóttir úr ÍRB setti telpnamet í 1500m skriðsundi þegar hún synti á tímanum 17:16,95. Gamla metið átti hún sjálf - 17:27,72.

Kristinn Þórarinsson úr Fjölni bætti einnig sitt eigið piltamet í 100m fjórsundi í úrslitunum í dag. Hann synti á 56,09 en gamla metið var 57,28 – stórgóð bæting!

Þá var keppt í 4x50m skriðsundi í blönduðum flokki karla og kvenna í fyrsta skipti á Íslandsmeistaramóti. Fyrri riðilinn sigraði B sveit SH þegar þau Sveinn Ólafur Lúðvíksson, Guðný Erna Bjarnadóttir, Kolbeinn Hrafnkelsson og Ásdís B. Guðnadóttir syntu á tímanum 1:44,23 – fyrsta Íslandsmetið sett í greininni.

Í seinni riðlinum synti A sveit SH svo á tímanum 1:39,78 og bættu þar af leiðandi Íslandsmet í greininni. Sveitina skipuðu Predrag Milos, Karen Sif Vilhjálmsdóttir, Snjólaug Tinna Hansdóttir og Aron Örn Stefánsson.

Í úrslitahlutanum 4x100 skriðsundsboðsundi setti B sveit ÍRB nýtt meyjamet þegar þær syntu á tímanum 4:25,20. Gamla metið var 4:30,39 og var í eigu ÍRB frá 2005. Sveitina skipuðu þær Stefanía Sigurþórsdóttir, Aníka Mjöll Júlíusdóttir, Jóhanna Matthea Jóhannesdóttir og Klaudia Malesa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×