Íslenski boltinn

Greta Mjöll hætt í fótbolta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Greta Mjöll Samúelsdóttir.
Greta Mjöll Samúelsdóttir. Mynd/Daníel
Greta Mjöll Samúelsdóttir, landsliðskona og fyrirliði bikarmeistara Breiðabliks í kvennafótboltanum, tilkynnti það í dag á fésbókarsíðu sinni að hún sé hætt í fótbolta aðeins 26 ára gömul.

„Í dag opinbera ég eina stærstu og erfiðustu ákvörðun lífs míns. Ég hef ákveðið að nú sé fótboltaferli mínum lokið," skrifar Greta Mjöll á fésbókinni.

Greta Mjöll Samúelsdóttir skoraði níu mörk í Pepsi-deildinni síðasta sumar og vann sér sæti í fyrsta landsliðshóp Freys Alexanderssonar. Hún hjálpaði Breiðablik síðan að vinna sinn fyrsta titil frá árinu 2005 þegar liðið vann 2-1 sigur á Þór/KA í bikarúrslitaleiknum.

„Álag og meiðsli hafa tekið sinn toll og ég hef barist við þetta hné mitt núna í 5 ár. Nú lýt ég í lægra haldi. Sársauki á hverjum degi er afar lýjandi og tekur einnig heilmikið á sálina. Ég kveð stelpurnar í Breiðablik með tár á hvarmi og söknuð í hjarta," segir Greta Mjöll í færslunni sinni.

Greta Mjöll Samúelsdóttir lék alls 108 leiki í efstu deild fyrir Breiðablik og skoraði í þeim 57 mörk. Hún vann þrjá stóra titla með félaginu, Íslandsmeistaratitil 2005 og bikarmeistaratitla 2005 og 2013.

„Ég gæti ekki verið stoltari af því að hafa fengið að vera fyrirliði þessa frábæra liðs og verða með þeim Bikarmeistari í sumar. Ég vil einnig þakka landsliðunum öllum fyrir dásamlega tíma frá því að ég var bara 14 ára. Svo var það auðvitað bara ómetanlegt að hafa skyndilega fengið að hoppa aftur í bláa liðið núna í haust og taka lokaskrefin með þeim í A-landsliðinu. Takk fyrir allt og Allt! ......nú er bara að leita að glugga. Greta," endar þessi litríki og skemmtilegi leikmaður færslu sína.

Þetta er mikið áfall fyrir Breiðabliksliðið enda Greta Mjöll í stóru hlutverki hjá Kópavogsliðinu. Greta Mjöll var fyrirliði liðsins í sumar en eins hún sagði frá hér fyrir ofan þá hefur hún misst mikið úr síðustu árin vegna erfiða hnémeiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×