Sport

Weidman sigraði kónginn í UFC

Weidman er nýr meistari í millivigt í UFC
Weidman er nýr meistari í millivigt í UFC
Bandaríkjamaðurinn Chris Weidman gerði sér lítið fyrir og sigraði Brasilíumanninn Anderson Silva í titilbardaga í millivigt í UFC í nótt. Weidman rotaði Silva í annari lotu og þar við sat.

Sigurinn er sérstaklega merkilegur þar sem Silva hefur verið konungur UFC í mörg ár og átti hann bæði lengstu sigurgöngu og titilvernd í sögu UFC.

Weidman hefur komið eins og stormsveipur inn í UFC en hann er ósigraður og er hann með tíu sigra í keppninni.

Silva gaf það til kynna í viðtali eftir slaginn að það væri ólíklegt að hann myndi reyna að endurheimta titilbeltið. Það er því ekki ólíklegt að það styttist í að þessi frábæri bardagamaður hætti alfarið að berjast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×