Sport

Sveinbjörg Norðurlandameistari

Sveinbjörg í langstökki.
Sveinbjörg í langstökki. mynd/silfrid.is

Sveinbjörg Zophoníasdóttir úr FH tryggði sér í dag Norðurlandameistaratitilinn í sjöþráut 22 ára og yngri en mótið fór fram í Svíþjóð.

Sveinbjörg var aðeins frá sínum besta árangri í dag en hún fékk 5.212 stig. Hún er búin að tryggja sig inn á EM í sjöþraut og langstökki.

Arna Stefanía Guðmundsdóttir ÍR lenti í þriðja sæti í flokki 19 ára og yngri og komst um leið inn á EM. Hún fékk 5.190 stig en lágmarkið var 5.100 stig.

Ásgerður Jana Ásgeirsdóttir tryggði sér þáttökurétt í kúluvarpi í flokki 17 ára og yngri. Hún var aðeins þrem stigum frá því að ná lágmarkinu í sjöþraut.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×