Sport

Hrafnhildur og Ingibjörg settu Íslandsmet

Hrafnhildur Lúthersdóttir.
Hrafnhildur Lúthersdóttir.
Sundkonan magnaða, Hrafnhildur Lúthersdóttir, setti í dag nýtt Íslandsmet í 100 metra bringusundi kvenna á Íslandsmeistaramótinu í 50 metra laug.

Hrafnhildur synti á 1:09.48 mínútum en eldra metið átti hún sjálf 1:09.92 en það var sett á HM50 í  Sjænghæ árið 2011.

Fyrr í dag setti síðan Ingibjörg Kristín Jónsdóttir nýtt Íslandsmet í 50 metra baksundi kvenna. Ingibjörg synti á tímanum 28.99 sekúndum sem er 1/100 undir Íslandsmeti Sarah Blake Bateman 29.00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×