Sport

Deilurnar snúast um Þjóðhátíð

Hásteinsvöllur í Vestmannaeyjum.
Hásteinsvöllur í Vestmannaeyjum.
Yfirlýsingar fljúga nú fram og til baka hjá stjórnarmönnum aðalstjórnar ÍBV. Þeir Páll Magnússon og Stefán Jónsson hafa nú svarað yfirlýsingu þeirra Jóhanns Péturssonar og Guðnýjar Hrefnu Einarsdóttur frá því fyrr í dag.

Aðeins tveir af sjö stjórnarmönnum í aðalstjórn gefa kost á sér til áframhaldandi starfa. Óánægja ríkir á meðal stjórnarmanna sem segja ónefnda menn í stjórninni taka sérhagsmuni ákveðinna deilda fram yfir hagsmuni félagsins.

Í yfirlýsingu þeirra Páls og Stefáns segir að deilur innan aðalstjórnar félagsins snúist ekki um einstakar deildir heldur um tekjur félagsins af Þjóðhátíð. Röng stefna hafi verið tekin sem náði hámarki í fyrra þegar fjárhagslegur ávinningur íBV af hátíðinni var lítill þrátt fyrir að reksturinn hafi verið með miklum ágætum.

Segja þeir Páll og Stefán að ávinningur ÍBV hafi verið minni en var kynntur á almennum félagsfundi í vetur. Það verði útskýrt nánar á aðalfundi félagsins fimmtudaginn 18. apríl.





Yfirlýsing Páls og Stefáns
Páll Magnússon
Vegna yfirlýsingar frá Jóhanni Péturssyni og Guðnýju Hrefnu Einarsdóttur, stjórnarmönnum í ÍBV Íþróttafélagi, viljum við undirritaðir stjórnarmenn taka fram eftirfarandi:

Það er rétt hjá þeim Jóhanni og Guðnýju Hrefnu að talsvert hefur skort á eindrægni innan stjórnar ÍBV Íþróttafélags á síðasta starfsári.

Þær deilur hafa þó ekki snúist um hagsmunabaráttu milli einstakra deilda innan félagsins, eins og skilja má af fyrrgreindri yfirlýsingu, - enda fara hagsmunir deildanna saman að okkar mati en eru ekki andstæðir.

Gagnrýni okkar tveggja innan stjórnarinnar hefur fyrst og fremst beinst að þeirri stefnu sem tekin hefur verið með Þjóðhátíð Vestmannaeyja undanfarin ár, sem er mikilvægasti einstaki þátturinn í fjármögnun á starfsemi ÍBV Íþróttafélags.

Segja má að þessi ranga stefna, að okkar mati, hafi náð ákveðnu hámarki í fyrra þegar aðsókn og tekjur af Þjóðhátíð voru með miklum ágætum en fjárhagslegur ávinningur ÍBV þrátt fyrir það sáralítill – og miklu minni en var t.d. kynntur á almennum félagsfundi í vetur. Þetta mun allt koma nánar fram á aðalfundi félagsins innan tíðar.

Um þetta hefur ágreiningurinn staðið, eins og lesa má í fundargerðum stjórnarinnar, en ekki um átök milli handbolta og fótbolta sem við könnumst ekki við að hafi verið á vettvangi stjórnar.

Það er síðan fremur dapurlegt að stjórnarformaður ÍBV Íþróttafélags skuli væna meðstjórnarmenn sína um að hafa ekki heildarhagsmuni félagsins að leiðarljósi í störfum sínum.

Páll Magnússon

Stefán Jónsson


Tengdar fréttir

"Óbreytt ástand er óviðunandi"

Aðeins tveir af sjö stjórnarmönnum í aðalstjórn ÍBV gefa kost á sér til áframhaldandi starfa. Óánægja ríkir á meðal stjórnarmanna sem segja ónefnda menn í stjórninni taka sérhagsmuni ákveðinna deilda fram yfir hagsmuni félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×