Lífið

Bieber vinsælastur á Twitter

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Justin Bieber er sannkölluð stjarna á Twitter.
Justin Bieber er sannkölluð stjarna á Twitter. Mynd/ Getty.
Hinn ungi poppsöngvari Justin Bieber er orðinn vinsælasti maður í heimi á Twitter. Hann skaust fram fyrir söngstjörnuna og Íslandsvinkonuna Lady Gaga í gær, en bæði eru þau með yfir 33 milljónir fylgjenda. Í þriðja sæti kemur síðan söng- og leikkonan Katy Perry sem er með yfir 31 milljón fylgjenda. Bieber fær um 40 þúsund nýja fylgjendur á dag en Gaga um 30 þúsund. Fjöldi fylgjenda á Twitter er sagður ágætis vísbending um vinsældir listamanna almennt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×