Matur

Hreinsandi súpa: Mexíkósk chili súpa

Ellý Ármanns skrifar

Auður Ingibjörg Konráðsdóttir heilsukokkur sem heldur úti vefsíðunni Heilsukokkur.is gefur okkur dásamlega uppskrift af hollri súpu. Það besta við uppskriftir Auðar er að hún notar hvorki hveiti né sykur.

Mexíkósk chili súpa

100 g svartbaunir, soðnar

100 g nýrnabaunir, soðnar

80 g maísbaunir

2 hvítlauksgeirar

1 rauðlaukur

2 msk sólblómaolía

2 tsk coriander duft

2 lífrænar límónur, safi og börkur

1 ltr vatn

200 g tómatar, saxaðir

1 1/2 msk tómatpúrra

1/8 ferskur chilipipar, meira ef þú þorir

½ dl ferskt koriander

1 tsk Himalaya salt

Saxa hvítlauk og chilipipar fínt, sneiða rauðlauk, raspa börk af límónu, skera hvíta hlutann frá, skera límónur og tómata í bita. Grófsaxða koriander og leggja til hliðar. Steikja rauðlauk, hvítlauk og chilipipar í olíunni þar til meyrt. Bæta vatni, límónum, grænmeti og kryddi saman við. Sjóða í 5 mínútur og smakka til með salti. Bæta þá tómötum og fersku koriander við.

Hreinsandi Chilipipar

Chilipipar er afar bragðsterkur og hreinsandi. Hann er náttúrulega verkjaeyðandi og slær á bólgur. Gott er að bæta ferskum chili pipar út í matinn þegar kvefpest herjar á mannskapinn.

Borgar sig að byrja á litlu magni

Fræin innan í belgnum gefa sterka bragðið. Við getum stillt bragðstyrkinn með því að auka eða minnka magnið af fræjunum sem við höfum með eða hreinsum frá. Það borgar sig að byrja á litlu magni og smakka sig áfram.

Einnig er vert að gæta að magninu þegar matreitt er fyrir börn því þau þola minni bragðstyrk en þeir sem eldri eru.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×