Lífið

Bieber riðar til falls

MYNDIR / COVER MEDIA
Ungstirnið Justin Bieber er duglegt við að koma sér í vandræði þessa dagana. Moshe Benabou, fyrrverandi lífvörður Bieber er búinn að kæra söngvarann fyrir líkamsárás.

Moshe var einu sinni í ísraelska hernum og kallar ekki allt ömmu sína en Bieber kýldi hann oft og mörgum sinnum í brjóstkassann þegar þeir urðu ósammála um öryggismál.

Bieber stendur í ströngu þessa dagana.
Moshe vill fá skaðabætur vegna atviksins auk 420 þúsund dollara, tæplega 55 milljóna króna, í yfirvinnu sem hann fékk aldrei greidda.

Vefsíðan TMZ birti myndir af Bieber fyrir stuttu að reykja jónu og því er nóg að gera hjá söngvaranum að bæta ímynd sína.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×