Bakþankar

Náttúruleg fegurð

Játning: Mér leiðast umhverfismál. Ég veit, ég veit, ég ætti að skammast mín. Ég bara get ekki að því gert. Þegar rammaáætlanir, megavött og ál ber á góma reikar hugurinn samstundis að mikilvægari málum eins og „hvað á ég að hafa í matinn í kvöld" eða „telst það löggild afsökun fyrir að þrífa ekki klósettið að mosagrænu rákirnar sem línustrika skálina gætu verið næsta stóra vísindauppgötvun á par við pensillín?" Fyrir áhyggjum af landi og náttúru treysti ég mér betri mönnum; Svandísi Svavarsdóttur; Andra Snæ Magnasyni. Þau kunna þetta.

Ég sat nýverið á Soho hótelinu í Lundúnum og beið þess að taka viðtal við framleiðanda sjónvarpsþáttanna Game of Thrones. Til að drepa tímann fletti ég Fréttablaðinu. Hugurinn tók samstundis að reika: Mengunarvarnir eru öfgar – „mig langar í pitsu í matinn"; mannréttindi að fá að spæna upp utanvega-gróður – „ef næsta pensillín fyndist í klósettinu hjá mér fengi ég pottþétt Nóbelsverðlaun"; nauðsynlegt að reisa Búlandsvirkjun því Skaftárhrepp vantar búbót – „já, já, bla, bla". Svandís og Andri Snær sæju um að lesa þetta. Ég setti stefnuna á fólk í fréttum. „Ah, betra." Íslendingur að meikaða í útlöndum. „Frábært." Annar Íslendingur að meikaða í útlöndum. „Geggjað." Ég var niðursokkin í að dást að þeirri ómetanlegu landkynningu sem barmurinn á Ásdísi Rán er þegar útréttur armur framleiðandans braust inn í sjónlínu mína.

Komið var að lokaspurningunni: „How did you like Iceland?" Ég hafði engan sérstakan áhuga á svarinu. Í huganum var ég komin í H&M verslunina við hliðina á hótelinu. En þar sem hluti nýju Game of Thrones-seríunnar var tekinn upp á Vatnajökli varð ég að spyrja. „Ísland er ólíkt öllu öðru sem ég hef séð!" Ákafi framleiðandans sló mig. „Við þurftum enga tölvugrafík á Íslandi. Þar eru til litir sem maður hefur aldrei séð áður. Fegurð Íslands er náttúruleg; hún er ekta."

Daglega drekkum við í okkur fréttir af Íslendingum sem gera garðinn frægan erlendis; skáldum sem keyptu sér miða með Iceland Express til London og fundu þar ljósritunarvél; tónlistarmönnum sem sigldu með gítarinn til Köben og eru nú stórir á Strikinu. En okkur yfirsést Íslendingurinn sem raunverulega meikaði það í útlöndum. Um þessar mundir leikur íslensk náttúra eitt af aðalhlutverkum í einum vinsælasta sjónvarpsþætti heims. Ef til vill er tími til kominn að við leggjum þeim Svandísi Svavars og Andra Snæ lið og sýnum íslenskri náttúru jafnmikinn stuðning og við sýnum brjóstaskorunni á Ásdísi Rán. – (Sýningar á Game of Thrones hefjast 2. apríl á Stöð 2. Vatnajökul og umhverfi hans má sjá á Suðausturlandi – að minnsta kosti enn um sinn).



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×