Fastir pennar

Skilorð fyrir kaup á barnavændi

Fyrir helgi var maður dæmdur í Héraðsdómi Vesturlands fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára gömlum dreng. Dómurinn hefur vakið athygli vegna þess hversu mildur hann er en maðurinn hlaut tólf mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm. Ástæðan er væntanlega sú að maðurinn er ákærður fyrir kynferðismök við drenginn „án þess að gæta nægjanlegrar varúðar um aldur piltsins". Í ákærunni er þannig gengið út frá því að ásetningur mannsins hafi verið að hafa mök við karlmann en ekki fjórtán ára barn. Velta má fyrir sér hvernig manninum á að hafa getað verið óljós aldur barnsins, ekki síst í samhengi við þá staðreynd að hann vann við að kenna unglingum. Þá má benda á að þrátt fyrir að ekki sé að öðru óbreyttu refsivert að hafa mök við barn sem er orðið fimmtán ára þá var maðurinn að kaupa vændi sem skilgreint er sem barnavændi ef sá eða sú sem vændið stundar er undir átján ára aldri.

Í mati læknis kemur fram að maðurinn hafi lifað í felum með samkynhneigð sína og „freistast til að leita eftir samskiptum við aðra karlmenn í netheimum". Eftir að upp komst um brot hans hafi hann farið í áfengismeðferð og stundað, auk AA-funda, fundi kynlífs- og ástarfíkla. Auk þess hafi hann misst vinnu sína þegar upp komst um málið og fjölskyldumál hans öll komist í uppnám. Það gefur augaleið að það leiðir bæði til uppnáms í fjölskyldu og atvinnumissis þegar upp kemst að maður hafi níðst á barni, ekki síst þegar kennari á í hlut. Vissulega er lofsvert að menn sem brotið hafa af sér sýni vilja til að snúa til betri vegar. Hitt má ekki gleymast, þrátt fyrir að mat læknis sé að ekki leiki grunur á að „um einhvers konar pedofiliu sé að ræða hjá ákærða eða einhverjar langanir til afbrigðilegs kynlífs með öðru hvoru kyninu," að brot hans var einmitt framið gegn fjórtán ára gömlu barni og að það var mjög alvarlegt.

Fyrir þinginu liggur nú tillaga tveggja ráðherra, Ögmundar innanríkis- og Össurar utanríkis-, um að Ísland fullgildi Evrópuráðssamning frá 2007 sem kenndur er við eyjuna Lanzarote og fjallar um vernd barna gegn kynferðislegri misnotkun, ásamt frumvarpi að lagabreytingum sem tryggja eiga framkvæmd samningsins.

Markmið þessa samnings er að koma í veg fyrir og berjast gegn kynferðislegri misneytingu og misnotkun á börnum og vernda réttindi barna sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi. Í samningnum eru meðal annars lagðar til leiðir til að berjast gegn barnavændi og grundvöllur skapaður til að sporna við því að fullorðnir falist eftir börnum í kynferðislegum tilgangi, til dæmis á spjallrásum.

Fullgilding Íslands á Lanzarote-samningnum, ásamt lagabreytingum sem tryggja framkvæmd hans, skila því vonandi meðal annars að ákæruvaldi og dómstólum sé ekki mögulegt að taka á kynferðislegri misnotkun á barni með þeim hætti og birtist í Héraðsdómi Vesturlands í síðustu viku.

Loks er rétt að minna á, fyrst ráðherrar eru komnir á lögfestingarbuxurnar, að enn er ólögfestur á Íslandi Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna sem fullgiltur var fyrir tveimur áratugum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×