Sport

Landsliðið í hópfimleikum er lið ársins 2012

Hér má sjá hluta af Gerplustelpunum í kvöld.
Hér má sjá hluta af Gerplustelpunum í kvöld. mynd/daníel
Sú nýbreytni var tekin upp í kjöri íþróttamanns ársins í ár að kjósa þjálfara og lið ársins. Lið ársins er kvennalandslið Íslands í hópfimleikum. Landsliðið er skipuð stúlkum úr fimleikafélaginu Gerplu í Kópavogi.

Stelpurnur urðu Evrópumeistarar í ár og þær urðu þess utan fyrsta liðið sem nær að verja Evrópumeistaratitilinn sem keppt er um á tveggja ára fresti.

Frábær árangur hjá frábæru liði.

Hópfimleikaliðið fékk yfirburðakosningu í kjörinu eða 22 atkvæði. Kvennalandslið Íslands í knattspyrnu fékk eitt atkvæði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×