Húsnæði Listaháskóla Íslands handónýtt Jóhanna Margrét Gísladóttir. skrifar 14. nóvember 2012 19:40
Húsnæði Listaháskóla Íslands að Sölvhólsgötu er ótækt fyrir þá starfsemi sem þar fer fram að mati nemenda. Reglur um brunavarnir og aðgengi eru þverbrotnar, loftræsting er ónýt og hljóðeinangrun lítil sem engin. Sextán nemendur í dansdeild skólans deila fjórum sturtum en eini strákurinn notar skáp sem búningsklefa. Við Sölvhólsgötu er leiklistar-, dans og tónlistardeildir Listaháskólans til húsa í gamla Landsmiðjuhúsinu, upphaflega var um bráðabirgðahúsnæði að ræða og hafa nauðsynlegar framkvæmdir á húsnæðinu til að það henti starfseminni aldrei verið gerðar. „Hér er mjög hljóðbært á milli herbergja, það er okkar vandamál," segir Sveinn Enok Jóhannsson, formaður nemendafélags tónlistardeildar LHÍ. „Síðan kemur á daginn eftir að bygginarfulltrúi tók húsið út í gær, öryggisreglur eru brotnar, og hafa verið ekki í lagi í sjö ár." Hann segir að byggingarfulltrúi borgarinnar hafi sagt skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis fyrir húsið hafi ekki verið uppfyllt, þá séu brunaútgangar ekki merktir, brunahurðir og eldvarnarveggi vanti og aðgengi sé slæmt. Sveinn segir húsnæðið beinlínis heilsuspillandi þar sem til dæmis tónlistarnemendur þurfi að stunda æfingar tímunum saman í litlum gluggalausum rýmum með engri loftræstingu og lítillri hljóðeinangrun. „Þá getur sá sem er í tónsmíðum verið að vinna að verki í einni stofu, það er kammer æfing í annarri stofu, suzuki æfing í hinni og allt blandast þetta saman, þetta er bara ekki hægt." Fyrir utan húsið hefur nokkrum kofum verið komið fyrir og þar er meðal annars æfingarrými dansara. „Það er einn strákur á dansdeildinni og hann hefur ekki búningsklefa eða sturtuaðstöðu," segir Þórunn Ylfa Brynjólfsdóttir, nemandi á dansdeild LHÍ. „Við þurfum að deila sturtunni saman, það eru fjórar sturtur og sextán nemendur og þetta er alls ekki ásættanlegt." „Við vorkennum greyið stráknum svo mikið. Hann er ekki einu sinni í búningsklefa, hann er í skáp þar sem við geymum jóga dýnur og þegar við ætlum í pílates þurfum við að banka: „Viktor, ertu nokkuð þarna inni?" og fá jóga dýnurnar." Nemendur ætla að mómæla aðstöðunni fyrir utan mennta- og menningarmálaráðuneytið á morgun. „Og vera þá með listsköpun sem að fer vanalega fram hér annað hvort í anddyrinu og fyrir utan, vera með kennslustund og sýna hvernig þetta á að virka, allir í einni kös."
Mest lesið Átök á aðalfundi og lögregla kölluð til Innlent Segir samstarfsfólk Katrínar hafa hvatt sig til að draga sig úr leik Innlent De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið Erlent Sindri Freyr er látinn Innlent „Fyrirvarinn var í rauninni enginn“ Innlent „Er búinn að blokka 237 manneskjur á tíu dögum“ Innlent Undir yfirborði kosningabaráttunnar kraumi svæsinn slagur Innlent Fyrstu tölur frá Reykjavík ættu að gefa góða mynd af úrslitum Innlent Öllu tjaldað til við opnun nýrra undirganga Innlent Katrín græði stórum á vangetu kjósenda til að kjósa taktískt Innlent Fleiri fréttir Öllu tjaldað til við opnun nýrra undirganga Segir samstarfsfólk Katrínar hafa hvatt sig til að draga sig úr leik Átök á aðalfundi og lögregla kölluð til Undir yfirborði kosningabaráttunnar kraumi svæsinn slagur Bíða krufningar til að varpa ljósi á atburðarásina „Fyrirvarinn var í rauninni enginn“ Fyrstu tölur frá Reykjavík ættu að gefa góða mynd af úrslitum „Er búinn að blokka 237 manneskjur á tíu dögum“ Katrín græði stórum á vangetu kjósenda til að kjósa taktískt Andlát í Bolungarvík og forsetaefni í slorinu Héraðsdómur ruddur vegna fjölskyldutengsla og fyrri starfa dómara Áfengi og fíkniefni mældust í stýrimanninum Tvíburafolöld mætt í heiminn í Suðurnesjabæ Ferðafólki bjargað úr sjálfheldu við Þiðriksvallavatn Þriðjungur þekkir ekki neitt til Eiríks og Viktors Sindri Freyr er látinn Voru látin í einhvern tíma áður en lögregla fór inn Vill sjá leiðtoga á Norðurlöndunum en ekki aumingja og gungur Mótor bátsins var of stór og mennirnir ekki í björgunarvestum Óttast að þvingun og nauðung verði færð í lög Andlát til rannsóknar í Bolungarvík Áhyggjur læknanna ótímabærar og byggðar á misskilningi Ástandið í Hafnarfirði geti haft langvarandi áhrif á börn „Okkar hlutverk að halda utan um hvert annað“ Ræddu lokasprett æsispennandi kosningabaráttu Biður kvikmyndagerðarmanninn afsökunar Tvö látin en ekkert bendi til saknæms atburðar Enginn í haldi í tengslum við mannslát í Bolungarvík Slökkvilið kallað út vegna sprenginga í Hafnarfirði Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Sjá meira