Matur

Helgarmatur meistaranna: Djúsí heilsusalat

Salóme Guðmundsdóttir forstöðumaður hjá Opna háskólanum í HR og jógakennari.
Salóme Guðmundsdóttir forstöðumaður hjá Opna háskólanum í HR og jógakennari.

Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að það er mánuður meistaranna og af því tilefni leitaði Lífið til Salóme Guðmundsdóttur, sem hefur tileinkað sér almennt mjög hollan og heilbrigðan lífsstíl, og bað hana að deila einni uppáhaldsuppskriftinni sinni með okkur fyrir helgina.

Djúsí heilsusalat (f. 2-3)

„Þetta salat er algjört æði, litríkt, gómsætt og rosalega einfalt. Það er í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég fékk þessa uppskrift upprunalega hjá Rakel Sif Sigurðar­dóttur sem heldur úti síðunni Næring og heilsa á Facebook og síðan aðeins prófað mig áfram."

1 poki klettasalat (u.þ.b. 75 gr)

1/3 agúrka skorin í bita

nokkur fersk jarðarber skorin í bita

2-3 harðsoðin egg í sneiðum

2x handfylli af kasjúhnetum og grófum kókosflögum (léttristað á pönnu með smá kókosolíu og maldon salti)

6–8 döðlur skornar í sneiðar

1 avókadó (meðalstórt)

smá geitaostur skorinn í sneiðar (má sleppa) eða fetaostur eftir smekk

balsamic krem yfir

Öllu blandað saman og smá balsamic dreift yfir. Þetta salat er gott að bera fram með nýbökuðu brauði og ísköldu vatnsglasi, en svo væri líka hægt að grilla kjúkling og rífa niður í salatið til að gera það matarmeira.

Ótrúlega léttur og góður og einstaklega fljótlegt að græja.



Desert fyrir meistara
(f. 4)

Þessi er sykurlaus og alveg lygilega góður! Ég fékk uppskriftina hjá Lovísu vinkonu minni, en hann er svakalega sniðugur ef þú vilt bjóða upp á hollan desert með lítilli fyrirhöfn.

Grunnur:

2 stórir bananar

2 avocado (meðalstór)

2-3 dl frosin blönduð ber (bæta í eftir smekk)

Múslí eftir smekk. Ég mæli með hunangsristuðu múslí eða lífrænu múslí með súkkulaði og kókos.

¼ l vanillurjómi þeyttur.

Fersk ber til skreytinga

Hrært vel saman í kröftugum blandara eða matvinnsluvél. Þennan grunn má líka frysta og geyma eða borða eins og ís en það er mjög smart að bera hann fram í glærum viskí glösum eftir að búið er að kæla hann í ísskáp í ca 30 – 60 mín.

Blandan er sett í rúmlega hálft glasið og 2-3 msk af múslí stráð yfir. Þar á ofan er settur þeyttur vanillurjómi og toppað með ferskum bláberjum eða jarðarberjum eftir smekk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×