Sport

Murray tókst ekki að bæta við gullverðlaunum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mirnyi og Azarenka féllust í faðma þegar sigurinn var í höfn.
Mirnyi og Azarenka féllust í faðma þegar sigurinn var í höfn. Nordicphotos/Getty
Andy Murray og hin 18 ára Laura Robson urðu að játa sig sigruð gegn Hvít-Rússunum Max Mirnyi og Victoriu Azarenku í úrslitum tvenndarleiksins í tenniskeppni Ólympíuleikanna í dag.

Robson og Murray, sem klukkustund áður tryggði sér gullverðlaun í einliðaleik karla, unnu fyrsta settið 6-1 og útlitið gott hjá breska parinu.

Hvít-Rússarnir, sem sóttu sigurstranglegastir fyrir leikana, sneru við blaðinu í öðru setti sem þeir unnu 6-3.

Þá var gripið til oddalotu þar sem spilað var upp í tíu stig. Jafnt var á öllum tölum þar til Hvít-Rússarnir komust í 9-6. Bretarnir minnkuðu muninn í 9-8 áður en Mirnyi fylgdi á eftir uppgjöf Azarenku og tryggði Hvít-Rússum gullið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×