Sport

Ísland vann til bronsverðlauna á Norðurlandamótinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kristín Jónsdóttir, Árni Sævar Gylfason og Valgeir Árni Ómarsson með verðlaun sín.
Kristín Jónsdóttir, Árni Sævar Gylfason og Valgeir Árni Ómarsson með verðlaun sín. Mynd / Anna Karólína Vilhjálmsdóttir
Íslenska landsliðið í boccia vann til bronsverðlauna í flokki 1 án rennu á Norðurlandamótinu í boccia sem fram fór í Laugardalshöll um helgina.

Lið Íslands í flokki 1 skipuðu þau Árni Sævar Gylfason, Kristín Jónsdóttir og Valgeir Árni Ómarsson.

Þetta eru fyrstu verðlaunin sem íslenska landsliðið nælir sér í á Norðurlandamótinu síðan árið 2002. Þá hlaut Margrét Edda Stefánsdóttir bronsverðlaun í rennuflokki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×