Sport

Þormóður fer á ÓL í London

Þormóður Árni á ferðinni á ÓL í Peking.
Þormóður Árni á ferðinni á ÓL í Peking. mynd/vilhelm
Það var staðfest í dag að júdókappinn Þormóður Árni Jónsson mun taka þátt á Ólympíuleikunum í London í sumar.

Alþjóða júdósambandið sendi í dag út lista yfir þá sem náðu að tryggja sér þáttökurétt á leikunum.

Þormóður Árni mun keppa í þungavigt en 32 kappar keppa í þeim flokki með útsláttarfyrirkomulagi.

Þormóður komst í þriðju umferð á ÓL í Peking árið 2008 og var ekki fjarri því að tryggja sig inn í átta manna úrslit. Hann var aðeins 40 sekúndum frá því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×