Jólin

Lax í jólaskapi

Eirnýju er jafnan að finna við borðið í versluninni Búrinu í Nóatúni í góðum félagsskap sérvalinna sælkeraosta og meðlætis af ýmsum gerðum.
Eirnýju er jafnan að finna við borðið í versluninni Búrinu í Nóatúni í góðum félagsskap sérvalinna sælkeraosta og meðlætis af ýmsum gerðum.
Eirný Sigurðardóttir, ostadrottningin í Búrinu, er þekktust fyrir sérþekkingu sína á dýrindis ostum af öllum gerðum og þjóðerni.

Færri vita að Eirný er lærður matreiðslumaður frá Edinborg, þar sem hún rak veisluþjónustu og veitingastað í mörg ár áður en hún hlýddi þeirri köllun sinni að ljúka undraveröld ostanna upp fyrir Íslendingum.

Hér lætur Eirný af hendi uppskrift að óhefðbundinni útgáfu af sígildum rétti, Coulibiac, sem er upprunninn í Rússlandi, var síðar ættleiddur af Frökkum og er nú í kominn í jólafötin að hætti Búrverja.

Jóla­salatið fer sérdeilis vel með þessum rétti en ofn­bakað rótargrænmeti eða seljurótarmauk með nógu af svörtum pipar og smjöri á líka vel við. - bb

Coulibiac - Lax í jólafötum

50 g smjör

1 blaðlaukur - smátt saxaður

1 rauðlaukur - smátt saxaður

1 gul paprika - smátt söxuð

1-2 hvítlauksrif

1 msk. rifinn ferskur engifer

400 g soðin hrísgrjón, til dæmis Basmati soðin með smá saffran

50 g heslihnetur - gróft saxaðar

85 g þurrkuð trönuber

2 msk. dill - smátt saxað

2 msk. fersk timjanblöð

börkur og safi úr hálfri sítrónu

½ tsk. rifinn appelsínubörkur

salt og pipar eftir smekk

150 g ferskur geitaostur, til dæmis Chavroux

1 pakki smjördeig

750 g lax, roðflettur, um 10 cm á breidd

2 egg

Hitið ofn í 190ºC. Setjið bökunar­pappír í ofnskúffu. Bræðið smjör í meðalstórum potti við vægan hita. Bætið blaðlauk, rauðlauk og gulri papriku út í og hitið í fimm mínútur eða þar til grænmetið er orðið mjúkt. Bætið hvítlauk og engifer við og látið malla í eina mínútu.

Takið af hitanum og setjið í stóra skál. Bætið við hrísgrjónum, heslihnetum, trönuberjum, kryddjurtum, sítrónu- og appelsínuberki og kryddið með salti og pipar eftir smekk. Látið kólna aðeins og bætið svo einu eggi saman við.

Leggið smjördeigsblað á ofnskúffuna. Setjið helminginn af hrísgrjónablöndunni ofan á en skiljið eftir sentimetra bil á jöðrunum allan hringinn. Setjið fisk ofan á og smyrjið geitaosti yfir og þar ofan á afganginn af hrísgrjónunum.

Penslið jaðra smjördeigsins með þeyttu eggi og leggið svo annað smjördeigsblað ofan á. Notið gaffal til að þrýsta smjördeiginu saman og búa til pakka og skerið afgangssmjördeig burt með beittum hníf. Skerið skálínur með tveggja sentimetra millibili ofan á svo gufa komist út á meðan rétturinn bakast í ofninum.

Penslið smjördeigið með afganginum af egginu og bakið í 35 mínútur eða þar til rétturinn er dökkgullinn að lit og stökkur. Látið standa í fimm mínútur og berið síðan fram.

Jólasalat

2 appelsínur eða mandarínur

1 granatepli

1 poki klettasalat eða blandað salat

75 g pekanhnetur

50 g macadamia eða pistasíuhnetur

2 msk. graslaukur

Blandið öllu saman og setjið gjarnan nokkra bita af Brie-osti yfir til skrauts og bragðbætis.

Salatsósa

3 msk. ólífuolía

1 msk. hvítt balsamedik

1 tsk. Dijon-sinnep

1 msk. villiblómahunang með pistasíum úr Búrinu

¼ msk. kanill - má sleppa

Blandið saman og þeytið með gaffli.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×