Lífið

Kveðjupartí Game of Thrones á Fjörukránni

Mikið stuð Jóhannes Viðar Bjarnason skellti upp mikilli veislu á Fjörukránni fyrir tökulið Game of Thrones, en fimm mánaða vinnu við þættina lauk formlega hér á landi á laugardaginn.Fréttablaðið/Arnþór
Mikið stuð Jóhannes Viðar Bjarnason skellti upp mikilli veislu á Fjörukránni fyrir tökulið Game of Thrones, en fimm mánaða vinnu við þættina lauk formlega hér á landi á laugardaginn.Fréttablaðið/Arnþór
Fimm mánaða löngu tökutímabili hjá tökuliði Game of Thrones lauk á laugardaginn og af því tilefni var skellt upp mikilli veislu á sunnudeginum. Staðsetningin var varla tilviljun, víkingastaðurinn Fjörukráin í Hafnarfirði.

„Þeir lögðu staðinn undir sig en þetta var mjög þægilegt og gott fólk sem var auðvelt að vera með,“ segir Jóhannes Viðar Bjarnason, vert á Fjörukránni.

Jóhannes bauð tökuliðinu upp á þjóðlega íslenska rétti og íslenskt jólahlaðborð. Stærstur hluti tökuliðsins er frá írskum armi HBO og þegar tveir trúbadorar stigu á stokk söng tökuliðið hástöfum með.

„Það er gott að halda partí á Fjörukránni,“ segir annar trúbadorinn, Ólafur Bjarnason. Hann spilaði og söng í næstum tvo tíma og þegar komið var að kveðjustund vildu gestirnir ekki fá neitt diskótek heldur heimtuðu meira kassagítarstuð. „Þeir þekktu lögin mjög vel og voru duglegir að skála,“ segir Ólafur. Mestu athyglina vakti auðvitað Kit Harington, sjálfur Jon Snow, sem leyfði hverjum sem vildi að mynda sig með sér. Tökuliðið svaf síðan úr sér á gistiheimilinu og hafði sig loks á brott eftir tæplega þriggja vikna dvöl hér á landi.

Síðustu tökurnar fóru fram við Höfðabrekkuheiði á laugardaginn og lék blindbylur tökuliðið grátt. Sumum íslensku statistunum stóð hreinlega ekki á sama þegar veðrið var sem verst en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins náðist hins vegar að klára allar tökur. Íslensku statistarnir urðu aftur á móti veðurtepptir og neyddust því til að gista á Vík yfir nóttina.- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×