Bakþankar

Jarðarför íslenskrar ólundar

Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar
Ég held við séum bara tveir í bænum Priego de Córdoba sem eigum það til að flýta okkur. Það er að segja ég og katalónski markaðsstjórinn sem arkar eftir götunum eins og byssubrandur. Allir aðrir virðast sífellt fara fetið á leið sinni um bæinn og stoppa annan hvern mann sem þeir hitta og spyrja út í hagi hans. Er fólki þetta svo tamt að bílstjórar hika ekki við að stoppa þegar þeir aka eftir þröngum einstefnugötunum, skrúfa niður rúðuna og hefja spjall við kunningja á vegkantinum og láta ólund þeirra sem fyrir aftan eru sér í léttu rúmi liggja.

En eftir lexíu nokkra sem ég fékk um daginn er ég að velta fyrir mér að skilja Katalanann eftir einan í þessu ólundarliði. Þannig er mál með vexti að ég var að drífa mig og tók bílinn því ég þurfti að fara á fund í útjaðri bæjarins. Ég er rétt búinn að fara hundrað metra eftir þröngri og krókóttri einstefnugötu þegar ég kem að kyrrstæðum bíl. Hlýtt var í veðri svo ég skrúfa niður rúðuna og þar sem ég var orðinn stressaður kveikti ég á græjunum. Bíllinn fyrir framan mig rétt lullast þá áfram nokkra metra. Við förum fyrir horn og sé ég þá að nokkuð löng bílaruna er fyrir framan mig.

Ég þen bílflautuna svolítið en set svo Hauk Morthens undir geislann og fallegasta rödd allra tíma hljómar um þröng strætin: „Þó þorskurinn sé ekki skepna skýr hann skömm hefur Bretanum á.“

Svo loks lullast röðin að götukaflanum sem er með tvær akreinar og þá gat ég beygt til hliðar og síðan keyrt framhjá rununni, syngjandi „kaupakonan hans Gísla í Gröf er glettin og hýr á brá“. En þá dynja ósköpin yfir. Ég sé, mér til mikillar hrellingar, að fyrir framan bílaröðina er heil hersing af fólki og svo glittir þar í blómahaf mikið. Og síðan þegar ég er að fara framhjá öllu saman sá ég sjálfan líkbílinn. Ég ætlaði að hverfa út í umferðina en varð fastur á rauðu ljósi. Ég kunni ekki við að loka glugganum meðan líkfylgdin fór framhjá mér en ég lækkaði í Hauki og hugsaði með mér hvað ég gæti sagt ef einhver yrti á mig. Hvernig skyldi maður segja á spænsku: „Jæja, Hemmi minn, ertu ekki alltaf í boltanum?“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×