Fastir pennar

Sólarlitir og fjörleg munstur í sumaryl

Eftir heldur daprar vikur sem hafa einkennst af hörmungum í Japan og óróleika í arabalöndum virtist skyndilegur vorhiti smita Parísarbúa á laugardag. Skyndilega fylltust búðir og götur af fólki í leit að léttari klæðnaði til daglegra nota. Verðandi brúðir freistuðu þess að finna kjóla fyrir borgaralega brúðkaupið og líka tilvonandi tengdamömmur sem eru að fara að gifta börnin sín því vorið og sumarið er hér tími brúðkaupa.

Litirnir í sumar eru sterkir og að sjálfsögðu tilbreyting frá öllum dökku vetrarlitunum en ekki síður frá hinum týpísku fölu sumarlitum í pastel sem svo gjarnan einkenna sumartískuna. Nú eru þeir fúksíubleikir, gulrauðir eða sítrónugulir og er jafnvel blandað saman fleiri en einum.

Látleysi er ekki lykilorðið í sumar því í viðbót við sterka liti er mikið um munstrað efni og oft í afgerandi litum. Þar getur allt eins verið um að ræða rómantískt blómamunstur með litlum frelsisblómum upp í heilu blómagarðana á flíkinni. Svo má nefna ýmis konar grafísk munstur í anda síðhippaáranna með skörpum línum. Blúndur og útsaumur eru enn áberandi hjá mörgum hönnuðum eins og hefur verið og oft eru stórar heklaðar blúndur saumaðar á annað efni.

Stuttbuxur verða áfram ómissandi og, líkt og bermúdabuxur hjá herrunum, notaðar í staðinn fyrir síðbuxur, sem í eina tíð þótti ekki fínt í daglegu borgarlífi. Nú þykir ekkert athugavert við að vera í stuttbuxum alla daga og ef sólin hverfur eru bara notaðar munstraðar sokkabuxur við, sem ætti að gleðja íbúa á norðurslóðum.

Önnur góð frétt fyrir þá sem búa við lágan sumarhita er perfektó-leðurjakki sem er ómissandi í sumar, stuttur og dálítið rokkaralegur, til dæmis í rauðu leðri hjá Jean-Paul Gaultier, fínn til að halda á sér hita ef ekki rignir.

Nýjungarnar eru ekki margar hjá tískuhúsunum í sumar en ein þeirra er kragalaus jakki, bæði frá Carven og Stellu McCartney. Hins vegar sagði mér innkaupastjóri hjá einu af stóru magasínunum í París að kragalausir jakkar og frakkar væru alltaf erfiðir í sölu því viðskiptavinirnir spyrðu alltaf hvað ætti að setja um hálsinn.

Annað merkilegt: þó að hælar séu enn svimandi háir eru strigaskór í stíl Converse inni líka, hinar frægustu stjörnur spóka sig í þeim, jafnvel þær sem ganga um með fimm þúsund evru Hermès-töskur. Sumir hanna slíka skó fyrir þekkt skómerki en aðrir framleiða sína eigin, eins og Lanvin eða Dolce et Gabbana.

bergb75@free.fr



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×