Jól

Ég er algjört jólabarn

Samverustundir með fjölskyldunni, hreint heimili og falleg tónlist kemur Regínu Ósk í jólaskap.
Samverustundir með fjölskyldunni, hreint heimili og falleg tónlist kemur Regínu Ósk í jólaskap.

„Ég er kannski ekki með einhverjar sérstakar hefðir en ég er að reyna að búa mér þær til með minni eigin fjölskyldu," svarar Regína Ósk söngkona þegar talið berst að jólahefðum hjá henni.

„Reyndar hittist fjölskyldan mín, mamma, pabbi, systkini og börnin, og við skreytum og bökum laufabrauð. Þessi jól ætlum við svo mæðgurnar að búa til ís eitthvert kvöldið. Aðalatriðið finnst mér að hafa nógu kósí heima. Kertaljós, seríur, jólaöl og konfekt," segir Regína.

Viltu rifja upp eftirminnileg jól? „Það eru fyrstu jólin þar sem ég var orðin mamma og svo jólin í fyrra sem ég eyddi með ömmu minni sem að lést svo í janúar á þessu ári. Það var yndislegt að geta verið með henni síðustu jólin hennar," segir Regína.

Hvernig verður aðfangadagskvöldið hjá þér? „Aðfangadagskvöldið verður að öllum líkindum yndislegt eins og vanalega. Mamma og pabbi verða hjá okkur eins og síðustu ár og pabbi eldar kalkúninn. Síðan verða auðvitað dæturnar, sem nú eru orðnar tvær, þar sem ég átti stelpu í júní síðastliðnum."

„Ég er algjört jólabarn og elska jólin, sérstaklega aðventuna. Ég á líka afmæli rétt fyrir jólin, 21.desember," segir Regína að lokum. - elly@365.is.

Vala Matt og jólin.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×