Íslenski boltinn

Grétar: Brynjar bombaði mig niður

Henry Birgir Gunnarsson á Hásteinsvelli skrifar
Grétar Sigfinnur Sigurðarson skildi ekki í því hvað Eyjamaðurinn Brynjar Gauti Guðjónsson var að hugsa er hann lét reka sig af velli. Hann sparkaði þá í Grétar.

"Hann bombaði mig bara viljandi niður fyrir framan dómarann. Þetta var svolítið klaufalegt hjá honum," sagði Grétar sem var nokkuð sáttur við stigið þrátt fyrir allt.

"Stigið er betra fyrir okkur en þá. Fyrirfram hefðum við líklega tekið það. Við erum sáttir við stigið en miðað við hvernig þetta spilaðist hefðum við viljað fá öll stigin."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×