Íslenski boltinn

Halldór Orri: Ekki sáttur við þessi úrslit

Stefán Árni Pálsson á KR-velli skrifar
„Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá er ég ekki sáttur við þessi úrslit,“ sagði Halldór Orri Björnsson, leikmaður Stjörnunnar, eftir jafnteflið við KR í kvöld.

„Þetta voru kannski sanngjörn úrslit, en ég fékk færi hérna í lokin og með smá heppni gátum við tekið öll stigin“.

„Eitt stig á sennilega erfiðasta útivelli landsins er svosem í lagi og við tökum það“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×