Íslenski boltinn

Ólafur: Heyrist aðeins kampavínsklapp frá okkar stuðningsmönnum

Stefán Árni Pálsson á Kópavogsvelli skrifar
„Þetta var vel tekinn aukaspyrna og Guðjón setti boltann óverjandi í netið,“ sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, eftir leikinn.

„Valsmenn fengu aftur á móti heldur léttvægilega aukaspyrnu sem að mínu mati átti aldrei að standa, upp úr því kom markið sem kostaði okkur sigurinn. Ég var mjög sáttur það hvernig menn lögðu sig fram í kvöld".

„Ég er aftur á móti ósáttur við þann stuðning sem liðið er að fá. Maður upplifir sig nánast eins og við séum að spila á útivelli. Það eina sem heyrist úr stúkunni er einskonar kampavínsklapp og ég hef fullt leyfi til að vera ósáttur með það. Strákarnir eiga miklu meira skilið“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×