Íslenski boltinn

Ólafur: Það hefur vantað leikgleði í leikmenn

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Fyrsti sigur okkar í langan tíma og auðvita er það ánægjulegt,“ sagði Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis, eftir sigurinn í kvöld.

„Við erum með mikið af ungum strákum í hópnum og þetta er þeirra tími til að nýta fyrir reynslubankann“.

„Við höfum leitað örlítið innávið að undanförnu og það hefur vantað ákveðna gleði í leikmenn þegar við höfum verið að spila. Við tókum þá ákvörðun að fara út í alla leiki og njóta þess að spila fótbolta og hafa gaman saman“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×