Íslenski boltinn

Rúnar: Þetta er ógeðslega gaman

Stefán Árni Pálsson á Laugardalsvellinum skrifar
„Þetta er ógeðslega gaman,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir sigurinn á Þór í bikarúrslitaleiknum sem fram fór á Laugardalsvelli í dag.

„Þórsarar bara nýttu ekki þau fjölmörgu færi sem liðið fékk í dag, en þeir áttu skínandi góðan leik og gerðu okkur gríðarlega erfitt fyrir“.

„Þeir skoruðu fyrir okkur fyrsta markið og því komumst við inn í hálfleikinn með 1-0 forystu. Við náðum aðeins að laga okkar leik í síðari hálfleiknum. Við byrjuðum að spila betur ok sköpuðum fínar sóknir sem endaði síðan með marki“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×