Íslenski boltinn

Tryggvi: Setjum pressu á KR

Stefán Árni Pálsson á Kópavogsvelli skrifar
„Þetta var erfiður leikur í kvöld enda eru Blikar með flott lið þó taflan sýni annað," sagði Tryggvi Guðmundsson, leikmaður ÍBV, eftir sigurinn á Breiðablik í kvöld.

„Við vorum mun duglegri í kvöld en í síðustu umferð og uppskárum eftir því. Ef baráttan er til staðar í liðinu þá vinnum við flest alla leiki. Leikmenn unnu vel fyrir hvorn annan í kvöld og renndu sér í alla bolta. Við þurftum að vinna þennan leik í kvöld til að setja einhverja spennu í þetta Íslandsmót og einhverja pressu á KR-ingana," sagði Tryggvi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×