Íslenski boltinn

Páll: Sköpuðum ekki nóg af færum

„Það er bara eitt stig í hús eftir þennan leik og við tökum því,“ sagði Páll Einarsson, þjálfari Þróttar, eftir 2-2 jafntefli gegn BÍ/Bolungarvík í dag.

„Að sjálfsögðu vill maður meira en við fengum bara eitt stig og förum með það áfram“.

„Við lendum tvisvar undir en strákarnir koma sterkir til baka, en BÍ spilar bara með sterka vörn og eru þéttir til baka sem er erfitt að ráða við“.

„Kannski vorum við örlítið betri útá velli en við náðum ekki að skapa okkur nóg af færum og því fór sem fór“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×