Handbolti

Guðjón: Erum öruggir með okkur í þessari höll

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Það gekk flest upp það sem við lögðum upp með í leiknum í dag,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson, leikmaður íslenska landsliðsins í handknattleik, eftir 15 marka stórsigur gegn Austurríki og í leiðinni miða á Evrópumótið í Serbíu.

„Okkur líður alltaf vel þegar við hlaupum inn á þennan völl og erum alltaf mjög öruggir með okkur“.

„Þegar maður er með svona frábæran stuðning þá líður manni oft eins og fátt geti farið úrskeiðis“.

„Þó svo að þetta líti út fyrir að hafa verið auðvelt þá þurftum við að hafa mikið fyrir þessum sigri,“ sagði Guðjón Valur eftir leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×