Lífið

Eurovision: Auðvitað voru þetta vonbrigði - myndband

Ellý Ármanns skrifar

Við hittum Valgeir Magnússon umboðsmann Heru í gærkvöldi eftir keppnina og spurðum hvernig íslenski hópurinn hefði það eftir úrslitin.

„Auðvitað voru þetta vonbrigði en það var samt gleði að hafa komist í úrslitin. Ég held að fólk átti sig ekki á því hvað það er erfitt að komast í úrslitin," svaraði hann.

Hvar eru krakkarnir núna? „Krakkarnir eru upp á herbergjunum sínum. Þau taka þessu eins og alvöru keppnisfólk.

Ná þau að höndla ósigurinn? „Já þau ná því alveg," sagði hann áður en hann fór upp á hótelherbergi útkeyrður eftir tveggja vikna dvöl í Osló.

Hópurinn flýgur heim til Íslands á morgun.

Sjá Lenu fagna í myndskeiðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×