Innlent

Sjúkraflug í öskufalli bíður vottunar

Síðastliðinn föstudag skrifaði Mýflug undir saming við Sjúkratryggingar Íslands um að taka tímabundið við sjúkraflugi í Vestmannaeyjum. Myndin er frá sjúkraflugi Mýflugs frá Eskifirði árið 2006. Mynd/Hörður Geirsson
Síðastliðinn föstudag skrifaði Mýflug undir saming við Sjúkratryggingar Íslands um að taka tímabundið við sjúkraflugi í Vestmannaeyjum. Myndin er frá sjúkraflugi Mýflugs frá Eskifirði árið 2006. Mynd/Hörður Geirsson
Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja hefur í tvígang kallað til þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja sjúklinga til lands, fremur en að kalla til Mýflug, sem í síðustu viku tók við sjúkraflutningum þaðan af Flugfélagi Vestmannaeyja.

Þannig fór Gæslan eina ferð í hádeginu á mánudag með sjúkling, en aðfaranótt þriðjudags var ákveðið að flytja konu í barnsnauð til lands með björgunarbátnum Þór fremur en með þyrlunni.

Gunnar Kristinn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar, segir öskufall frá Eyjafjallajökli hamla flugi, en þyrlan þoli það betur. Þá sé þess beðið að Mýflug fái vottun á flugvél sem þeir hafa yfir að ráða svo nota megi hana í aðstæðum sem þessum.

Um leið segir Gunnar bagalegt að nú skuli ekki staðsett í Eyjum vél til sjúkraflugs, en vélar Mýflugs eru staðsettar á Akureyri og geta 75 til 80 mínútur liðið frá útkalli þar til hún er komin til Vestmannaeyja. Mýflug tók við fluginu samkvæmt tímabundnu samkomulagi við Sjúkratryggingar Íslands sem undirritað var síðasta föstudag, eftir að Flugfélag Vestmannaeyja missti flugrekstrarleyfi sitt. „En þetta er bara sú staða sem upp er komin og við henni varð að bregðast," segir Gunnar Kristinn.

Leifur Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Mýflugs, segir félagið í hvorugt skiptið sem um er getið hér að ofan hafa verið haft með í ráðum með hvaða hætti ætti að flytja fólkið til lands. „Ég hef farið yfir þetta með Neyðarlínunni og þeir segja mér að þetta sé ákvörðun læknanna á staðnum," segir hann.

Þá bendir Leifur á að þótt Vestmannaeyjar séu inni á flugbannssvæði vegna öskufalls þá hafi félagið yfir að ráða flugvél sem flogið geti við slíkar aðstæður. Sú vél hefur að sögn Leifs verið notuð í sjúkraflug í um tvo áratugi, en nú horfi svo við vegna Evrópureglna að ekki megi flytja með henni sjúklinga í börum áður en búið sé að votta búnaðinn. „Ég leitaði eftir því við Flugmálastjórn hvort við fengjum undanþágu í viku meðan beðið er eftir pappírum frá Bandaríkjunum, en fékk þvert nei."

Fram kemur á vef Sjúkratrygginga Íslands að í fyrra hafi verið farin 86 sjúkraflug í Vestmannaeyjum. olikr@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×