Innlent

Gat á poka og blóðblettir í skotti komu upp um Gunnar Rúnar

Breki Logason. skrifar
Gunnar Rúnar Sigurþórsson þegar hann kom til þingfestingar í Héraðsdómi Reykjaness á föstudaginn síðasta.
Gunnar Rúnar Sigurþórsson þegar hann kom til þingfestingar í Héraðsdómi Reykjaness á föstudaginn síðasta.

Gat á poka og blóðblettir í skotti á bifreið Gunnars Rúnar Sigurþórssonar virðast hafa komið upp um hann. Í játningu Gunnars kemur fram að hann ætlaði sér að komast upp með morðið.

Yfirheyrslan yfir Gunnari sem fréttastofa hefur undir höndum, er tekin 7.september síðast liðinn, þremur dögum eftir að hann játaði fyrir lögreglu að hafa orðið Hannesi að bana. Í skýrslutökunni lýsir Gunnar aðdraganda morðsins nokkuð ítarlega.

Þar segist Gunnar hafa byrjað að sanka að sér hlutum nokkrum mánuðum eftir að að fræg ástarjátning hans til kærustu Hannesar birtist á youtube í mars á síðasta ári.

Hnífinn sem hann notaði við verknaðinn fékk hann í Húsasmiðjunni þar sem hann starfaði fyrir nokkrum árum, og stóra úlpu hafði móðir hans gefið honum. Um mitt ár 2009 keypt hann límbandsrúllu í Húsasmiðjunni og stal síðan poka af latexhönskum af vinnustað sínum, en hann starfaði hjá tölvufyrirtækinu Maritech í Borgartúni.

Lambúshettu sem hann bar á sér við verknaðinn keypti hann síðan í verslun 66 gráður norður. Morðið var því þaulskipulagt en áður en Gunnar gekk að húsi Hannesar teipaði hann poka yfir skó sína, setti á sig lambúshettuna og fór í úlpuna.

Á vettvangi fannst hinsvegar skófar eftir Gunnar, en svo virðist vera sem gat hafi komið á annan pokann í atganginum. Einnig fannst blóð í skotti á bifreið Gunnars, en dótið setti hann í skottið áður en hann fleygði því Hafnarfjarðarhöfn.

Einnig kemur fram að Gunnar reyndi aldrei að þrífa bíl sinn eftir verknaðinn en á eftirlistmyndavélum við Hafnarfjarðarhöfn sést bill hans koma keyrandi, og Gunnar henda dótinu í höfnina.

Bol og buxum sem hann var í henti hann síðan í ruslatunnu við verslun sem er skammt frá heimili hans.

Aðalmeðferð í málinu fer fram 21.desember næstkomandi en fyrir þann tíma munu tveir geðlæknar framkvæma svokallað yfirmat á geðheilbrigði Gunnars.

Fram hefur komið að í svokölluðu undirmati hafi geðlæknar komist að því að Gunnar sé ósakhæfur. Verði yfirmatið á sömu vegu og hið fyrra, eru yfignæfandi líkur á því að dómari muni meta Gunnar ósakhæfann í málinu.

Ítarlega verður fjallað um játningu Gunnars í kvöldfréttum Stöðvar 2 og í Íslandi í dag, strax að loknum fréttum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×