Tónlist

Menntaskóli Borgarfjarðar

Nafn: Katerina Inga Lionaraki

Aldur: 18 ára

Skóli: Menntaskóli Borgarfjarðar

Nám: Félagsfræðibraut

Hvaða lag ertu að syngja í keppninni? Við gengum tvö

Ertu á lausu? Já

Hver er þín fyrirmynd í söng? Eva Cassidy, Emilina Torrini, Nina Simone o.fl

Hvað er leiðinlegasta ferðalag sem þú hefur farið í? Þegar ég fór á Krít á ráðstefnu sem pabbi var að halda... Að dansa með

grískum miðaldra prófessorum er ekki góð skemmtun.

Þú vaknar sem einstaklingur af hinu kyninu, hvað gerirðu? Safna mér mottu, möllet og barta... ekkert heitara.

Af hverju tókstu þátt í undankeppni fyrir Söngkeppnina? Mér var mútað með svo fallegum síma

Hver er heitasti kennarinn í skólanum? Klárlega hún móðir mín

Ef fjölkvæni væri leyfilegt á íslandi, hvaða þrem manneskjum myndirðu giftast? Björgvini Páll Gústavssyni, Davíð Þór Jónssyni og Hugleiki Dagssyni

Vissir Þú að... Katerina er hálf grísk og hálf íslensk








Fleiri fréttir

Sjá meira


×