Lífið

Er virkilega gott að kela með þetta? - myndir

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar sérstök heimasíða fyrir átakið „Mottu-mars" var opnuð.

Þar gefst öllum sem sprettur grön kostur á að skrá sig og vera með í keppni um flottasta yfirvararskegg marsmánaðar - og safna í leiðinni áheitum til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands.

Íslenskir karlmenn og Tom Selleck eru meðvitaðir um að mikill hárvöxtur er málið.

Skeggsprettandi karlmenn streyma nú inn á vefinn karlmennogkrabbamein.is bæði til að skrá sig í keppnina og til að heita á skeggjaða vini og félaga.

Á fyrsta degi safnaðist hvorki meira né minna en 195.000.- krónur.

Eins og myndirnar sýna voru helstu íþróttamenn landsins með áberandi flottan hárvöxt á efri vör.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×