Innlent

Snæfellsjökull lýstur upp til að vekja fólk

Þýski ljósalistamaðurinn fór ásamt samverkafólki sínu á Snæfellsjökul í gær og kveðst heillaður af landslaginu á Íslandi.Mynd/Sighvatur Lárusson
Þýski ljósalistamaðurinn fór ásamt samverkafólki sínu á Snæfellsjökul í gær og kveðst heillaður af landslaginu á Íslandi.Mynd/Sighvatur Lárusson

„Þetta verða skilaboð til allra hér á jörðu um að við verðum að takast á við hnattræna hlýnun,“ segir þýski listamaðurinn Gert Hof, sem áætlar að lýsa upp sjálfan Snæfellsjökul í október á þessu ári.

Hof segist lengi hafa verið hugfanginn af Norðurpólnum og að boð um að koma hingað hafi fallið vel að því. Hann skoðaði aðstæður á Snæfellsjökli í gær og kveðst heillaður af landslaginu hér. „Það er virkilega undravert og á sama tíma ögrandi fyrir mig sem listamann,“ segir hann.

Hof fæddist í Austur-Þýskalandi árið 1951. Hann var lengi leikstjóri og óperustjóri áður en hann gekk rokklistinni á hönd á tíunda áratugnum og útvíkkaði sviðslist sína svo um munaði. Hof hefur unnið myndbönd með rokksveitum á borð við Ramstein og Motorhead og lýst upp fjölmargar byggingar og sögulega staði um víða veröld. Meðal þeirra má nefna Akrópólis í Grikklandi.

Hof segir margt þurfa að fara saman svo verkefnið verði að veruleika. „Við þurfum rétta fólkið og við höfum rétta fólkið hér. Í öðru lagi þurfum við réttu pólitísku kringumstæðurnar. Fólkið vill þetta. Í þriðja lagi er þetta ótrúlega fallegur staður. Í fjórða lagi þarf verkefnið að hafa réttu skilaboðin og þau eru þetta stóra umhverfisvandamál allrar jarðarinnar,“ útskýrir Hof.

Þá kveður Hof sögu Jules Werne um Ferðina inn að miðju jarðar í gegnum Snæfellsjökul ljá verkefninu sérstaka vídd. „Ég get ekkert sagt á þessu augnabliki um það hvernig þetta muni líta út en ég vil segja að Jules Werne var í leiðangri að miðju jarðar. Ég sjálfur, sem listamaður, ásamt ykkur, íbúum Íslands, mun reyna að senda ákall til himins,“ segir Hof og bendir á að í raun sé himininn eins og sýningartjald sem allir geta litið á.

Bergljót Arnalds og Páll Ásgeir Davíðsson áttu hugmyndina að því að fá Hof til landsins. Síðan fengu þau til liðs við sig íslenska fyrirtækið Northern Lights Energy. Bergljót leiðir tónlistarsköpun sem verður hluti sýningarinnar og byggir á hljóðum Snæfellsjökuls sjálfs.

Páll Ásgeir segir verkefnið unnið út frá hugmyndinni um samfélagslega ábyrgð. Bæta hafa þurft ímynd Íslands eftir eldgos og efnahagshrun. „Það er snilld fyrir Íslendinga eftir að hafa haft eldgos í jökli á Íslandi að öðrum jökli á landinu sé breytt í listaverk,“ segir Páll Ásgeir. gar@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×