Bakþankar

Guð vors lands

Sr. Sigurður Árni Þórðarson skrifar
Er þjóðsöngur Íslendinga úreltur? Ýmsir félagsfræðingar, t.d. Robert Bellah, hafa sýnt að þjóðsöngvar gegna ekki aðeins almennu stemnings- og samstöðuhlutverki, heldur líka trúarlegu hlutverki. Gildir einu hvort sem texti þeirra vísar til Guðs, trúarstefs eða ekki. Þetta hlutverk varðar helgun og fullgildingu þjóðar.

Flestir, sem ekki eru algerlega trúarlega laglausir eða ljóðrænt flatir, geta skynjað eða tengst einhverju í texta „Ó, Guð vors lands". Skáldpresturinn Matthías Jochumsson orti svo vítt og breitt að múslimar, hindúar, kristnir og efahyggjumenn geta samsinnt boðskap þjóðsöngsins einmitt vegna breiddar og kredduleysis hans. Vegna þessa er hann vel fallinn til að þjóna táknhlutverki þjóðsöngs, ekki síst á tímum trúarlegs fjölbreytileika.

Lagið hæfir og þolir fangbreidd textans, sem flengist slysalaust frá kyrru hins titrandi társ til skartsækinna sólkerfa, sem raða sér í krans! Í fátæku samfélagi varð söngur, lag og hátíð til að lyfta draumum, vonum og tilfinningum. Íslendingar gátu þrátt fyrir allt spunnið úr sögu, náttúru og möguleikum eitthvað rismikið, öflugt og seiðandi. Öndvert öllu oflæti fyrr og síðar er í þjóðsöngnum líka minnt á for­gengileika og skammæi lífsins. Þar er tjáð viska um líf, gildi, fegurð og samtengingu alls sem er. Þar er margt til að meta og læra.

Í skyndiyfirheyrslum fjölmiðla er fólk stundum spurt hvort það kunni þjóðsönginn. Flestir kunna fyrsta erindið, en fæstir tvö þau seinni. Raunar er fyrsta erindið rismest, flýgur hæst og dýpst. En síðari erindin dýpka stef og vinna úr hugmyndum. Þar er jafnvel að finna sorgarvinnu sem heppnast (lestu öll erindin og íhugaðu hve veröldin lýsist og stefnan til gæðalífs styrkist).

Þjóðsöngurinn hentar illa til rútusöngs og drykkjubreims. Það er kannski ekki löstur heldur beinlínis kostur! Hinar glaðværu stundir kappleikja þarfnast ekki þjóðsöngs, heldur fremur einfalds texta og grípandi lags, n.k. barnasöngva. Þjóðsöngvar eru almennt leiknir við upphaf millilandakeppna og alþjóðamóta. Á þeim stundum raula eða muldra leikmenn með, en engar kröfur eru gerðar til þeirra að syngja þá hástöfum og í heyrandi hljóði. Texti „Ó Guð vors lands" á slíkum stundum er ljómandi og getur enda hvatt menn til dáða. Hver kynslóð velur sér hvatningartexta og syngur þá. Tíska breytist og hver tíð á sér söngva og lög, sem henta breytilegum smekk. En þjóðsöngurinn er klassík, bæði lag og texti. Og einkenni á klassík er að hið klassíska þolir og lifir af nag tímans. Þjóðsöngurinn er fullgildur.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×