Innlent

Sérstakur saksóknari gefur út sínar fyrstu ákærur

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Ragnar Zophonías Guðjónsson var sparissjóðsstjóri Byrs. Hann hefur nú verið ákærður fyrir umboðssvik.
Ragnar Zophonías Guðjónsson var sparissjóðsstjóri Byrs. Hann hefur nú verið ákærður fyrir umboðssvik.

Embætti sérstaks saksóknara hefur gefið út sínar fyrstu ákærur. Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs og Ragnar Zophonías Guðjónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri og ónafngreindur þriðji maður eru ákærðir fyrir umboðssvik vegna lánveitingar Byrs sparisjóðs til félagsins Exeter Holding.

Um er að ræða fyrstu ákærur sérstaks saksóknara, en nafn þriðja mannsins hefur ekki fengist staðfest. Umboðssvik eru hegningarlagabrot sem varða allt að tveggja ára fangelsi og allt að sex ára fangelsi ef sakir eru mjög miklar.

Málið snýst um 1,1 milljarðs króna lán sem Byr veitti Exeter Holding í tveimur hlutum, október og desember 2008, eftir bankahrunið, til þess að kaupa 1,8 prósent stofnfjárhlut í Byr. Þessi lánveiting er talin hafa valdið sparisjóðnum miklu fjárhagslegu tjóni. Seljandi bréfanna var MP banki en bankinn hafði fengið þau meðal annars eftir veðkall á eignarhaldsfélagið Húnahorn sem var í eigu nokkurra stjórnenda Byrs, þ.ám. Ragnars Zophoníasar Guðjónssonar, sparisjóðsstjóra. Aðrir seljendur voru m.a. áðurnefndur Jón Þorsteinn og Birgir Ómar Haraldsson, fyrrverandi stjórnarmaður í Byr.

Alls voru fjórtán einstaklingar grunaðir undir rannsókn málsins, samkvæmt heimildum fréttastofu. Rannsókn var felld niður á hendur Birgi Ómari, og Auði Örnu Eiríksdóttur, útibússtjóra Byrs og níu öðrum sakborningum og hafa þeir allir fengið bréf þess efnis, en Auður Arna var meðal eiganda Húnahorns sem átti upphaflega stofnfjárbréfin í Byr sem félagið Exeter Holding keypti af MP banka, en MP banki hafði eignast þau eftir veðkall þar sem Húnahorn gat ekki veitt fullnægjandi tryggingar fyrir lánum þegar stofnfjárbréfin lækkuðu í verði.

Rannsókn málsins er nú lokið og fékkst það staðfest hjá embætti sérstaks saksóknara. Embættið gat engar aðrar upplýsingar veitt þar sem rannsakendur eru bundnir við lög um meðferð sakamála en ákærurnar hafa ekki verið birtar fyrir öllum sakborningunum þremur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×