Innlent

Fjórir árekstrar á 70 mínútum

Þriggja bíla árekstur varð á Vesturlandsvegi við Lyngholt í Hvalfjarðarsveit á sunnudagseftirmiðdag. Áreksturinn var eitt fjögurra umferðar­óhappa sem voru tilkynnt til lögreglunnar í Borgarfirði og Dölum á sjötíu mínútna tímabili á sunnudag.

Ökumaður eins bílsins ætlaði að beygja af veginum og hægði því á sér. Annar bíll ók aftan á hann og sá þriðji þar á eftir. Slys á fólki voru minni háttar en bílarnir skemmdust töluvert mikið. Umferð á veginum tafðist talsvert í kjölfar slyssins. - þeb







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×