Innlent

Knúti breytt í sjóræningjaskip

Knútur hífður Niðurlægingarskeiði Knúts er lokið og hann fær nýtt líf sem glæsilegt sjóræningjaskip í ævintýraheimum skemmtigarðsins í Grafarvogi.fréttablaðið/gva
Knútur hífður Niðurlægingarskeiði Knúts er lokið og hann fær nýtt líf sem glæsilegt sjóræningjaskip í ævintýraheimum skemmtigarðsins í Grafarvogi.fréttablaðið/gva

Knútur RE, 30 tonna netabátur sem smíðaður var í kringum 1960, gengur á næstunni í endurnýjun lífdaga sem sjóræningjaskip í skemmtigarðinum í Grafarvogi. Þar mun báturinn vera hluti af nýrri og glæsilegri minigolfbraut sem smíðuð verður í kringum „golfvöllinn“. Þessi ævintýralegi 18 holu golfvöllur verður annar tveggja sem til stendur að opna á svæðinu.

Minigolf er ein vinsælasta afþreying í skemmtigörðum um heim allan í dag og skiptir þá sviðsmyndin hvað mestu máli. Knútur RE mun setja mikinn svip á svæðið en undanfarin ár hefur hann legið verkefnalaus við slippinn í Reykjanesbæ. Knútur var fluttur í lögreglufylgd í skemmtigarðinn í Grafarvogi í gær þar sem gagngerar breytingar á honum hefjast næstu daga. - shá



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×