Innlent

Fáum ekki Norðurlandalán fyrr en endurskoðun lýkur

Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar.
Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar.

Forsætisráðherra Svíþjóðar, Fredrik Reinfeldt, segir í viðtali við Reuters í dag að Svíar muni ekki lána Íslendingum fyrr en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) endurskoðar áætlun sína fyrir Ísland. Endurskoðun AGS hefur, að því er virðist, slegið á frest.

Fredrik segist hafa rætt beint við Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra Íslands, á dögunum og í því samtali hafi hann tilkynnt henni að Svíar hygðust ræða við aðrar Norðurlandaþjóðir um vilja þeirra að Ísland heiðri erlendar skuldbindingar sínar.

Svo segir hann orðrétt: „Við viljum að Ísland haldi sig við þessar alþjóðlegu skuldbindingar og í kjölfarið munum við standa við okkar loforð."

Þegar rætt var við Gylfa Magnússon, viðskiptaráðherra, um ástæður þess að AGS myndi fresta endurskoðun sinni, sagðist hann telja að ástæðan væri einfaldlega Icesave-skuldin sem bíður þess að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×