Lífið

Annar Bieber-tvíburinn genginn út

Stjörnuparið Birgitta Líf og Jóhannes hafa verið saman í tæpan mánuð. Hér eru þau ásamt hinum Bieber-tvíburanum, Steini, sem er þeim á hægri hönd. Steinn er enn á lausu.Fréttablaðið/Stefán
Stjörnuparið Birgitta Líf og Jóhannes hafa verið saman í tæpan mánuð. Hér eru þau ásamt hinum Bieber-tvíburanum, Steini, sem er þeim á hægri hönd. Steinn er enn á lausu.Fréttablaðið/Stefán
„Við erum náttúrlega orðnir frekar þekktir,“ segir Jóhannes Þorkelsson en hann og tvíburabróðir hans, Steinn, þykja nauðalíkir söngvaranum Justin Bieber. Tímaritið Monitor fjallaði um tvíburana fyrr í vetur og síðan þá hafa strákarnir haft í nógu að snúast í félagslífi Verzlunarskólans, en þeir hófu nám við skólann nú í haust.

Það ætlaði því allt um koll að keyra á samskiptasíðunni Facebook þegar Jóhannes skráði sig í samband við unga Verzlómær fyrir tæpum mánuði. Sú heppna heitir Birgitta Líf Björnsdóttir og er tveimur árum eldri en Jóhannes.

„Það þykir frekar óvenjulegt að stelpa sé með yngri strák,“ segir Jóhannes, en bætir því við að þau hafi fengið góð viðbrögð frá langflestum. „Ég er samt ekki með bílpróf, svo Birgitta sér bara um að keyra okkur,“ segir Jóhannes.

Birgitta Líf ætti ekki heldur að vera óvön athyglinni, en hún er dóttir Dísu og Bjössa í World Class. En hvað með bróðurinn? „Steinn er ennþá á lausu, en ég held að hann sé eitthvað að slá sér upp,“ segir Jóhannes að lokum. - ka





Fleiri fréttir

Sjá meira


×