Innlent

Steingrímur segir ekkert hæft í sögu um samstarf við Framsókn

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna. „Undarlegt að menn séu að kjafta um slíkt, segir hann um hugsanlegt samstarf við Framsóknarflokkinn.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna. „Undarlegt að menn séu að kjafta um slíkt, segir hann um hugsanlegt samstarf við Framsóknarflokkinn.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir ekkert hæft í þeim sögusögnum að viðræður séu hafnar við Framsókn um að ganga inn í stjórnarsamstarfið og segir undarlegt að menn séu að kjafta um slíkt. Þá kallar formaður Framsóknar fréttirnar „spuna."

Í gærkvöldi birtust fréttir þess efnis að Framsóknarflokknum hefði verið boðið nýtt atvinnuvegaráðuneyti sem tekur til starfa 1. mars næstkomandi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, gefur lítið fyrir fréttir þess efnis. „Nú eru einhverjir alveg að missa sig í spunanum. Búinn að sjá nokkrar furðufréttir," skrifar formaðurinn á vefsíðu sína á Facebook. „Ég kannast alls ekki við þetta og það eru engar viðræður í gangi svo ég viti til," sagði Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins við fréttastofuna í morgun.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir jafnframt ekkert hæft í þeim fréttum að viðræður séu hafnar við Framsóknarflokkinn.



„Undarlegt að menn séu að kjafta um slíkt"


„Nei, það er bókstaflega ekkert hæft í því, enda eru það nú ekki hlutir sem menn fíflast eitthvað með eða taka af léttúð. Ef menn fara í viðræður um samstarf þá er það formlegur prósess þar sem að menn þurfa umboð frá stofnunum viðkomandi flokka. Og það er ekkert slíkt á döfinni og undarlegt að menn séu að kjafta um slíkt. Þannig að það er einfalt svar, engar slíkar viðræður í gangi," segir Steingrímur.

Eftir því sem fréttastofa kemst næst eru fréttirnar um samstarf við Framsóknarflokkinn sprottnar af samtölum milli þingmanna, en einhverjir stjórnarþingmenn hafa af því áhyggjur að stjórnin standi tæpt eftir að þrír þingmenn sátu hjá við afgreiðslu fjárlaga. Tveir þingmannanna, Ásmundur Einar Daðason og Atli Gíslason, hafa hins vegar lýst því yfir að þeir verji ríkisstjórnina vantrausti. Með stuðningi þeirra er ríkisstjórnin með stuðning þrjátíu og þriggja þingmanna, sem er þriggja þingmanna meirihluti.

Nokkur erfið mál bíða afgreiðslu þingsins, m.a Icesave-málið en fyrstu umræðu um málið lauk hinn 16. desember sl. og verður málið til umfjöllunar í fjárlaganefnd þegar þingið kemur saman í upphafi nýs árs.


Tengdar fréttir

Framsóknarflokknum boðið atvinnumálaráðuneyti

Þingmenn innan Vinstri grænna og Samfylkingarinnar, hafa boðið Framsóknarflokknum nýtt atvinnumálaráðuneyti, sem verður til við lagabreytingu 1. mars næstkomandi, gangi Framsókn inn í viðkvæmt meirihlutasamstarf.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×