Jólin

Skotheld fegrunarráð fyrir jólin

Karl Berndsen veit hvað hann syngur þegar kemur að útliti kvenna.
Karl Berndsen veit hvað hann syngur þegar kemur að útliti kvenna.

Hár- og förðunarfræðingurinn Karl Berndsen gaf nýverið út forvitnilegt kennslumyndband fyrir konur sem vilja líta vel út.

Jól.is hafði samband við Karl í von um skotheld fegrunarráð og til að forvitnast hvort hann er kominn í jólaskap.





Fölsk augnahár eru algjört möst, segir Karl.

„Eina sem ég hef gert nú þegar er að kaupa kassa af Nóa konfekti og ég er búinn að éta uppúr hálfum kassanum," svarar Karl og heldur áfram:

„Einnig hef ég rennt niður ógurlegu magni af nýbökuðum smákökum - sem bregðast aldrei hjá fjölskyldunni. Annað verður að bíða til Þorláksmessu."



„Einnig hef ég rennt niður ógurlegu magni af nýbökuðum smákökum."

Hvernig verður aðfangadagskvöldið hjá þér? „Ég borða rjúpu á aðfangadagskvöld og hef alltaf gert. Meira að segja þegar ég var grænmetisæta til ellefu ára."

„Síðan eyði ég jólunum í svefn og át þess á milli," svarar Karl. -elly@365.is





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×