Lífið

Stefnir á atvinnumannaferil í blönduðum bardagalistum

Hinn tvítugi Gunnar Nelson stefnir á atvinnumannaferil í blönduðum bardagalistum, einni blóðugustu íþrótt heims. Hann dreymir um að keppa í Bandaríkjunum en þar er lágmarksaldur keppenda 21 ár. Gunnar verður í viðtali Í Íslandi í dag.

Auk þess fá áhorfendur Íslands í dag að kynnast hljómsveitinni Krooks sem inniheldur meðlimi úr Mercedes Club, Quarashi og Dr. Mister og Mr. Handsome. Þá kynnumst við breyttum listageira en nú er hægt að leigja málverk í stað þess að kaupa þau. Fylgist með Íslandi í dag í kvöld klukkan 18:55.

MMA





Fleiri fréttir

Sjá meira


×