Eva María Jónsdóttir í Eurovision 8. janúar 2009 07:00 Ragnhildur Steinunn og Eva María leiða áhorfendur í allan sannleikann um Eurovision-keppendurna.
Eva María Jónsdóttir hefur gengið til liðs við hið árlega Eurovision-æði sem grípur þjóðina því hún mun verða kynnir Eurovision ásamt Ragnhildi Steinunni. „Ég hef alltaf tekið þátt í þessu en bara heima hjá mér. Núna verður þetta bara í vinnunni,“ segir Eva María um kynnisstarf sitt í Eurovision og viðurkennir fúslega að hún sé heilluð af þessari keppni sem margir telja nú ekki merkilega. „Eurovision er bara eitthvert furðulegt og fyndið sjónvarpsefni,“ útskýrir sjónvarpskonan. Fyrsta kvöldið verður á laugardaginn en þá keppa fjögur lög um hylli áhorfenda heima í stofu. Meðal þeirra sem stíga á svið eru ungstirnið Jóhanna Guðrún, Edgar Smári og Idol-Heiða. Eva segist ekkert kvíða því að þurfa að hlusta á öll lögin og kastar glöð frá sér þeim forréttindum að geta slökkt á sjónvarpinu ef lagasmíðarnar reynast vera skelfilegar. „Og svo er það nú líka oft þannig að verstu atriðin eru oft eftirminnilegust.“ Ragnhildur Steinunn stjórnaði Eurovision-langlokunni í fyrra ásamt Gísla Einarssyni og vakti sjónvarpskonan mikla athygli fyrir oft á tíðum glæsilega og íburðarmikla kjóla. Eva leyfir sér að efast um að Eurovision-keppnin í ár verði einhver svipuð búningaveisla og þá. „Ég er búin með það tímabil í mínu lífi. Þetta verður meira um flytjendurna og dansarana enda er Eurovision-keppnin sjálf alveg nóg fyrir áhorfendurna.“freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Stjörnulífið: Laumugifting í helli Lífið Fleiri fréttir Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Sjá meira