Viðskipti innlent

Gengi Century Aluminum hækkar í byrjun dags

Úr álveri Norðuráls á Grundartanga.
Úr álveri Norðuráls á Grundartanga.

Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, hefur hækkað um 4,43 í einum viðskiptum í Kauphöllinni eftir viðvarandi lækkun síðustu daga. Þá hefur gengi bréfa í stoðtækjafyrirtækinu Össuri hækkað um 2,11 prósent.

Fjögur viðskipti standa á bak við hækkun Össurar upp á 38,4 milljónir króna en ein upp á rúm 400 þúsund krónur á bak við hækkun Century Aluminum.

Þá hafa tvenn viðskipti átt sér stað með hlutabréf Straums. Gengi bréfa í fjárfestingabankanum hefur hins vegar ekki hreyfst.

Úrvalsvísitalan (OMXI15) hefur hækkað um 0,41 prósent og stendur hún í 314 stigum.









Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×