Lífið

Alíslenskt undanúrslitakvöld

Dr. Gunni skrifar
Eurobandið var framlag Íslands í fyrra.
Eurobandið var framlag Íslands í fyrra.
Annað undanúrslitakvöldið í Eurovisionforvalinu brestur á eftir Spaugstofuna á laugardaginn. Okkur er boðið upp á fjögur lög, það fyrsta, „Fósturjörð", er eftir Einar Scheving. Einar hefur verið í fremstu röð íslenskra trommara lengi og vakti mikla athygli nýlega fyrir jazzplötuna Cycles. Lagið hans er dramatískur ættjarðaróður sem Páll Rósinkranz syngur hnarreistur.

Stórskotalið stendur á bakvið næsta lagi, „Undir regnboganum". Poppstjarnan Ingó syngur það, Eiríkur Hauksson gerði textann og Hallgrímur Óskarsson lagið. Hallgrímur hefur áður tekið þátt í Eurovision, náði lengst þegar Birgitta Haukdal söng lag hans í aðalkeppninni 2003. Lagið sem hann keppir með á laugardaginn er krúttlegt úkúlele-knúið popplag sem minnir á lög Vilhjálms Vilhjálmssonar og Gilberts O'Sullivan. Hallgrímur fær svo Jógvan til að syngja hitt lagið sitt í ár í þættinum eftir tvær vikur.

Þriðja lagið er „Vornótt" eftir Erlu Gígju Þorvaldsdóttur með texta eftir Hilmi Jóhannesson. Erla er eina konan sem á lag í keppninni í ár og að auki elst keppenda, er komin langt að sjötugu. Hún fær unga söngkonu úr Mosfellsbænum, Hreindísi Ylvu Garðarsdóttur Holm, til að syngja lagið, sem er hugljúft og af gamla skólanum.

Síðasta er „Glópagull" eftir Einar Oddsson, kraftmesta og rokkaðasta lag kvöldsins. Það þýðir ekkert minna en tvær sönkonur til að flytja það, þær Ernu Hrönn, áður í Bermúda, og Guðrúnu Lísu, áður í Ísafold.

Eins og sést verða öll lögin sungin á íslensku á laugardaginn, en fyrir viku fóru tvö lög sem sungin voru á ensku áfram en íslensku lögin sátu eftir. Spennandi verður að sjá hvaða fataleppum kynnarnir klæðast, prjónapeysurnar þeirra í fyrsta þættinum vöktu eiginlega meiri athygli en lögin sjálf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×